
Góð ráð
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Ráðleggingar um eldun
Notaðu aðgerðina Matreiðsla með
þvinguðu loftstreymi til að forhita ofninn á
sem hraðastan hátt.
Ofninn hefur fjórar hillustöður. Teldu
hillustöðurnar að neðan frá botni
ofnrýmisins.
Raki getur þéttst í ofninum eða á glerplötum
hurðarinnar meðan á eldun stendur. Haltu
þig alltaf frá ofninum þegar þú opnar
ofnhurðina.
Þegar ofninn kólnar skaltu hreinsa rýmið
með mjúkum klút.
Kökur bakaðar
Opnaðu ekki ofnhurðina fyrr en 3/4
baksturstímans eru liðnir
Eldun á kjöti og fiski
Láttu kjötið standa í um það bil 15 mínútur
áður en þú skerð það svo að vökvinn seytli
ekki út.
Til að koma í veg fyrir of mikinn reyk í
ofninum meðan verið er að steikja skal
bæta svolitlu vatni í ofnskúffuna. Til að
koma í veg fyrir þéttingu reyks skal bæta
við vatni í hvert sinn sem það gufar upp.
Eldunartímar
Eldunartímar fara eftir tegund matvæla,
þéttni þeirra og magni.
Í byrjun skaltu fylgjast með frammistöðunni
þegar þú eldar. Finndu bestu stillingarnar
(hitastillingu, eldunartíma, o.s.frv.) fyrir
eldunaráhöldin þín, uppskriftir og skammta
þegar þú notar þetta tæki.
Ráðleggingar varðandi örbylgju
Settu matinn á glerbotnplötu fyrir örbylgju
neðst í rýminu.
Snúðu eða hrærðu í matnum þegar
affrystingar- og eldunartími er hálfnaður.
Hyldu matinn þegar hann er eldaður og
endurhitaður.
Settu skeiðina í flöskuna eða glasið þegar
drykkir eru hitaðir til að tryggja betri
dreifingu hita.
Settu matinn inn í ofnin án allra umbúða.
Aðeins er hægt er að setja tilbúnar máltíðir í
umbúðum í ofninn þegar setja má
umbúðirnar í örbylgju (athugaðu
upplýsingarnar á umbúðunum).
Eldun í örbylgju
Eldaðu matinn undir loki. Ef þú vilt halda
skorpunni skaltu elda mat án loks.
Ekki ofelda réttina með því að stilla orku og
tíma of hátt. Maturinn kann að þorna upp,
brenna, eða valda eldsvoða.
Notaðu ekki ofninn til að sjóða egg í
skurninni, eða snigla, því þau geta sprungið.
Gerðu gat á eggjarauðu spæleggs áður en
þú endurhitar það.
Gerðu gat á matvæli með húð eða hýði
með gaffli nokkrum sinnum fyrir eldun.
Skerðu grænmeti niður í bita af svipaðri
stærð.
Hrærðu í fljótandi réttum af og til.
Hræðu í matnum áður en hann er borinn
fram.
Eftir að þú hefur slökkt á ofninum skaltu taka
matinn út og láta hann standa í nokkrar
mínútur.
ÍSLENSKA
17
Kommentare zu diesen Handbüchern