IKEA MHIN2K Bedienungsanleitung Seite 40

  • Herunterladen
  • Zu meinen Handbüchern hinzufügen
  • Drucken
  • Seite
    / 56
  • Inhaltsverzeichnis
  • LESEZEICHEN
  • Bewertet. / 5. Basierend auf Kundenbewertungen
Seitenansicht 39
Öryggisleiðbeiningar
Uppsetning
AÐVÖRUN! Einungis til þess
hæfur aðili má setja upp þetta
heimilistæki.
Fjarlægðu allar umbúðir.
Ekki setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu
sem fylgja með heimilistækinu.
Haltu lágmarksfjarlægð frá hinum
heimilistækjunum og einingunum.
Alltaf skal sýna aðgát þegar
heimilistækið er fært vegna þess að það
er þungt. Notaðu alltaf öryggishanska og
lokaðan skóbúnað.
Innsigla skal skorna fleti með þéttiefni til
að koma í veg fyrir að raki valdi þenslu.
Vernda skal botn heimilistækisins fyrir
gufu og raka.
Ekki skal setja upp heimilistækið við
hliðina á hurð eða undir glugga. Það
kemur í veg fyrir að heit eldunarílát falli
af tækinu þegar dyrnar eða glugginn er
opnaður.
Ef heimilistækið er sett upp fyrir ofan
skúffur skal gæta þess að bilið milli botns
heimilistækisins og efstu skúffunnar sé
nægjanlegt fyrir loftsskipti.
Botn heimilistækisins getur orðið heitur.
Gættu þess að setja óbrennanlegt
aðgreiningarspjald undir heimilistækið til
að koma í veg fyrir aðgang að botni
þess.
Fylgdu samsetningarleiðbeiningunum.
Gættu þess að rými til loftskipta sem
nemur 2 mm sé laust á milli vinnuborðsins
og framhluta einingarinnar fyrir neðan.
Ábyrgðin nær ekki til tjóns sem skapast
vegna skorts á nægu loftræstirými.
Rafmagnstenging
AÐVÖRUN! Eldhætta og hætta á
raflosti.
Allar tengingar við rafmagn skulu
framkvæmdar af rafverktaka með tilskilin
starfsréttindi.
Heimilistækið þarf að vera jarðtengt.
Áður en nokkur vinna fer fram á
heimilistækinu þarf að taka það úr
sambandi við rafmagn.
Gakktu úr skugga um að
rafmagnsupplýsingarnar á merkiplötunni
passi við aflgjafann. Ef ekki, skal hafa
samband við rafvirkja.
Gættu þess að heimilistækið sé rétt
innsett. Laus eða röng rafmagnssnúra
eða kló (ef við á) getur valdið því að
rafmagnsúttakið ofhitni.
Notaðu rétta rafmagnssnúru.
Gættu þess að rafmagnssnúran sé ekki
flækt.
Gættu þess að raflostvörn sé til staðar.
Notaðu álagsminnkandi klemmu á
snúruna.
Gættu þess að rafmagnsinnstungan eða
klóin (ef við á) snerti ekki heitt
heimilistækið eða heit eldunaráhöld
þegar þú tengir heimilistækið við
nærliggjandi innstungur
Notaðu ekki fjöltengi eða
framlengingarsnúrur.
Gættu þess að rafmagnsklóin (ef við á)
eða snúran verði ekki fyrir skemmdum.
Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð eða rafvirkja til að
skipta um skemmda rafmagnssnúru.
Raflostsvörn lifandi og einangraðra hluta
verður að vera fest þannig að ekki sé
hægt að fjarlægja hana án verkfæra.
Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok
uppsetningarinnar. Gakktu úr skugga um
að rafmagnsklóin sé aðgengileg eftir
uppsetningu.
ÍSLENSKA
40
Seitenansicht 39
1 2 ... 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 ... 55 56

Kommentare zu diesen Handbüchern

Keine Kommentare