
Efnisyfirlit
Öryggisupplýsingar 45
Vörulýsing 46
Dagleg notkun 47
Góð ráð 49
Meðferð og þrif 49
Hvað skal gera ef... 50
Tæknilegar upplýsingar 51
Innsetning 51
Umhverfisábendingar 52
IKEA-ÁBYRGÐ 53
Með fyrirvara á breytingum.
Öryggisupplýsingar
Til að tryggja öryggi þitt og rétta not-
kun heimilistækisins skaltu lesa þessa
handbók vel og vandlega áður en það er
sett upp og tekið í notkun. Geymdu ávallt
þessar leiðbeiningar með heimilistækinu,
einnig ef þú flytur eða selur það. Notendur
heimilistækisins þurfa að hafa kynnt sér not-
kunarreglur og helstu öryggisatriði þess
ítarlega.
Rétt notkun
• Ekki skilja heimilistækið eftir án eftirlits á
meðan það er í gangi.
• Þetta heimilistæki er eingöngu ætlað til
heimilisnota.
• Heimilistækið má ekki nota sem vinnu-
borð eða geymsluborð.
• Ekki setja eða geyma eldfima vökva,
mjög eldfim efni eða bráðnunargjarna
hluti (t.d. plastfilmu, plast, ál) í heimilis-
tækið eða nálægt því.
• Sýna ber aðgát þegar raftæki eru tengd
við nálægar innstungur. Rafmagnssnúrur
mega ekki snerta eða leggjast undir
heimilistækið eða heit eldunarílát.
• Til að forðast meiðsli eða skemmdir á
heimilistækinu skaltu ekki annast sjálf(ur)
viðgerðir á því. Hafðu alltaf samband við
eftirsöluþjónustuna (sjá kaflann Þjónusta).
Öryggi barna
• Aðeins fullorðnir mega nota þetta heimil-
istæki. Börn verða að vera undir eftirliti til
að tryggja að þau leiki sér ekki að heimil-
istækinu.
• Haldið öllum umbúðum frá börnum.
Hætta er á köfnun.
• Haldið börnum frá heimilistækinu þegar
það er í gangi.
Ađvörun Settu barnalæsinguna á svo
að lítil börn eða gæludýr kveiki ekki á
heimilistækinu fyrir slysni.
Almennt öryggi
• Þetta heimilistæki er ekki ætlað fólki (þar
á meðal börnum) með skerta skynjun,
skerta andlega getu eða litla reynslu og
þekkingu, nema viðkomandi sé undir eft-
irliti eða leiðsögn persónu, sem ber
ábyrgð á öryggi viðkomandi.
Uppsetning
• Gættu þess að heimilistækið hafi ekki
skemmst í flutningum. Ekki tengja skemmt
heimilistæki við rafmagn. Ef nauðsyn kref-
ur skal hafa samband við eftirsöluþjón-
ustuaðila (sjá kaflann Þjónusta).
• Aðeins vottuðum þjónustuaðila er heimilt
að setja tækið upp, tengja það eða gera
við það. Notaðu eingöngu upprunalega
varahluti.
• Innbyggð heimilistæki má aðeins nota
eftir að þau hafa verið byggð inn í við-
eigandi einingar og vinnufleti, sem upp-
fylla staðla.
• Ekki breyta tækniforskriftinni eða breyta
þessari vöru. Hætta á meiðslum og að
heimilistækið skemmist.
Ađvörun Fylgið vandlega
leiðbeiningunum um rafmagns- og
gastengingar.
• Ekki setja heimilistækið upp ef það hefur
skemmst í flutningum.
ÍSLENSKA 45
Kommentare zu diesen Handbüchern