IKEA TYDLIG Bedienungsanleitung Seite 48

  • Herunterladen
  • Zu meinen Handbüchern hinzufügen
  • Drucken
  • Seite
    / 56
  • Inhaltsverzeichnis
  • LESEZEICHEN
  • Bewertet. / 5. Basierend auf Kundenbewertungen
Seitenansicht 47
AÐVÖRUN! Uppsetningin þarf
að vera í samræmi við reglur,
reglugerðir, tilskipanir og staðla
(reglur og reglugerðir um öryggi
rafmagns, rétta endurvinnslu í
samræmi við reglugerðir o.s.frv.)
sem gilda í notkunarlandinu!
AÐVÖRUN! Heimilistækið þarf
að vera jarðtengt!
AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum af
rafstraumi.
Það er straumur á rafmagnsinnstungunni.
Taktu rafspennuna af
rafmagnsinnstungunni.
Lausar og óviðeigandi klær og
innstungur geta valdið ofhitnun á
rafskautinu.
Láttu setja klemmutengin rétt upp.
Notið álagsminnkandi klemmu á
snúruna.
Fylgdu skýringarmynd fyrir raftengingu
(hana er að finna neðarlega á
eldavélinni).
Mikilvægt!
Heimilistækið þarf að vera í vissri
lágmarksfjarlægð frá öðrum
heimilistækjum og skápum eða öðrum
einingum, í samræmi við
samsetningarleiðbeiningarnar.
Ef enginn ofn er fyrir neðan
eldunarhelluna skal koma fyrir skilrúmi
minnst 20 mm frá botni eldunarhellunnar.
Ekki nota sílíkonþéttiefni á milli
heimilistækisins og vinnuborðsins.
Forðastu að setja heimilistækið upp við
dyr og undir gluggum, þar sem heit
eldunarílát gætu ýst út af hellunum við
það að dyr og gluggar eru opnaðir.
Aðeins vottuðum þjónustuaðila er heimilt
að setja tækið upp, tengja það eða gera
við það. Notaðu eingöngu upprunalega
varahluti.
Tenging við rafmagn
Áður en tengt er, athugaðu þá að
málspenna heimilistækisins sem sýnd er á
merkiplötunni sé sú sama og
afhendingarspennan frá rafveitunni.
Einnig skal athuga afköst heimilistækisins
og ganga úr skugga um að vírinn sé af
réttri stærð fyrir afköst heimilistækisins
(sjá kaflann Tæknilegar upplýsingar).
Merkiplatan er staðsett neðarlega á ytra
byrði eldunarhellunnar.
Rafmagnssnúra fylgir ekki með
heimilistækinu. Kauptu rétta snúru frá
sérhæfðum söluaðila. Eins-fasa eða
tveggja-fasa tenging þarfnast
meginkapals af tegundinni H05BB-F/
H05V2V2-F Tmax 90°C (jafnt eða
hærra).
Þetta tæki vinnur fullkomlega við AC 230
V, AC 220 V~ eða AC 240 V~ 50 Hz
rafmagnskerfi.
Þú þarft að hafa möguleika á aftengingu
sem er innbyggður í föstu lagnirnar.
Tengdu heimilistækið við rafmagn með
búnað sem gerir kleift að aftengja
heimilistækið frá rafmagni á öllum
rafskautum með minnst 3 mm víðu
snertuopi, t.d. sjálfvirka aftengingu til
verndar leiðslum, jarðlekarofa eða
bræðivara.
Við tengingu við rafmagn og
uppsetningu tengileiðslna þarf að fara
eftir skýringarmynd tenginga (hún er
staðsett neðarlega á eldavélinni).
Jarðtengingarleiðslan er tengd við skaut
sem merkt er með tákninu og þarf að
vera lengri en leiðslur sem bera
rafstraum. Hertu skrúfurnar vel! Að lokum
skaltu festa tengisnúruna með
rafmagnssnúruhöldunni og loka hlífinni
með því að þrýsta þétt á (svo að hún
smelli á sinn stað).
ÍSLENSKA
48
Seitenansicht 47
1 2 ... 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56

Kommentare zu diesen Handbüchern

Keine Kommentare